kólni niður í rétt hitastig og skemmist
ekki.
• Ekki skal nota þurrkarann ef iðnaðar-
efni hafa verið notuð til hreinsunar -
þ.e. ef fötin hafa farið í hreinsun.
• Tryggðu að góð loftræsting sé til stað-
ar í rýminu þar sem þurrkarinn er settur
upp, til að forðast bakflæði lofttegun-
da inn í herbergið frá heimilistækjum
sem nota annað eldsneyti, þ.m.t. frá
opnum eldi.
1.2 Uppsetning
• Þetta heimilistæki er þungt. Vertu
varkár þegar þú færir tækið.
• Þegar umbúðirnar eru fjarlægðar,
gangið úr skugga um að heimilistækið
sé ekki skemmt. Ef nokkur vafi leikur á
því skal ekki nota tækið heldur hafa
samband við viðgerðaraðila.
• Allar umbúðir verður að fjarlægja fyrir
notkun. Hættulegar skemmdir geta
orðið á eignum og vörunni sjálfri ef
ekki er farið eftir þessu. Sjá viðeigandi
kafla í notendahandbókinni.
• Hvers kyns rafmagnsvinna sem þarf við
uppsetningu þessa heimilistækis verð-
ur að vera framkvæmd af rafvirkja með
viðeigandi réttindi eða öðrum aðila
sem hæfur er til verksins.
• Setja verður bakhlið tækisins upp við
vegginn
• Ef tækinu er stillt upp á teppi eða sam-
svarandi, skal stilla fæturna. Loft verður
að flæða frjálst undir tækið.
• Eftir uppsetningu tækisins, skal athuga
að það þrengi ekki að eða standi á raf-
magnstengikaplinum.
• Ef þurrkarinn stendur ofan á þvottavél
er nauðsynlegt að nota til þess gerðar
festingar (aukabúnaður) - sjá kafla:
"FYLGIHLUTIR").
1.3 Notkun
• Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað
til heimilisnota. Það má ekki nota það í
öðrum tilgangi .
• Einungis skal þurrka dúka og efni sem
er leyfilegt að þurrka í þurrkara. Fylgið
leiðbeiningum á þvottamiða fatnaðar-
ins.
• Setjið ekki óþveginn þvott í þurrkar-
ann.
• Hlaðið ekki meiri fötum í þurrkarann
en mælt er með. Fylgið leiðbeiningum
um hámarkshleðslu. Sjá viðeigandi ka-
fla í notendahandbókinni.
• Ekki skal setja rennandi blaut föt í
þurrkarann.
• Flíkur sem hafa komist í snertingu við
rokgjarnar olíuvörur ættu ekki að fara í
þurrkara. Ef rokgjörn hreinsiefni eru
notuð skal fjarlægja slík efni úr flíkinni
áður en hún fer í þurrkarann.
• Notið aldrei þurrkara ef rafmagnssnúr-
an, stjórnborðið, vinnuflöturinn eða
undirstaðan eru skemmd þannig að
greiður aðgangur sé að innra byrði
tækisins:
• Mýkingarefni eða samsvarandi vörur
verður að nota eins og er tilgreint af
framleiðanda mýkingarefnisins.
• Eldhætta! Ekki reyna að þurrka
skemmda hluti sem eru fóðraðir eða
fylltir (kodda, jakka, sængur, o.s.frv.).
Fóðringin eða fyllingin getur farið út
og valdið eldsvoða.
1.4 Öryggi barna
• Ung börn og veikburða einstaklingar
mega ekki nota tækið án eftirlits.
• Börn bera oft ekki kennsl á hættuna
sem tengist rafmagnstækjum. Hafa
skal eftirlit með að börn leiki sér ekki
með þetta heimilistæki.
AÐVÖRUN
• Hætta á köfnun! Umbúðirnar
(t. d. plastfilma, einangrunarpl-
ast) geta verið hættulegar
börnum - geyma skal þær þar
sem börn ná ekki til.
• Geymið öll þvottaefni á öruggum stað
þar sem börn ná ekki til.
• Tryggið að börn eða gæludýr klifri ekki
inn í tromluna.
1.5 Fargið tækinu
• Aftengið klóna frá rafmagnsinnstung-
unni.
• Klippa rafmagnssnúruna af og fleygja
henni.
• Fleygja hurðarlokunni. Það kemur í
veg fyrir að börn eða gæludýr geti lok-
ast inni tækinu. Hætta er á köfnun.
4
www.aeg.com
Comments to this Manuals