
28
Aukabúnaður
Hjá umboðsaðila er hægt að fá eftirtalinn aukabúnað:
Festisett fyrir þvottavél/þurrkara
Með þessari raðeiningu má stilla upp þurrkaranum ásamt AEG-
þvottavél (60cm breiðri, framhlaðinni) í turn til að spara gólfpláss.
Þvottavélin er fyrir neðan, þurrkarinn fyrir ofan.
Tvær útfærslur eru fáanlegar:
– án vinnuborðs
– með lausu vinnuborði
Frárennslisbúnaður fyrir þéttivatn
Útbúnaður til að hleypa þéttivatni beint í vask, vatnslás, niðurfallsrist
eða þvíumlíkt. Þá þarf ekki lengur að tæma vatnstankinn, en hann
verður að vera áfram á sínum stað í tækinu. Hægt er að aftengja
gaumljósið LOSA VATN, sjá kafla “Stillingar“.
Mesta hæð: 1m frá gólfi (þurrkari); hámarkslengd: 3m
Comments to this Manuals